- Fréttir og tilkynningar
- Tilkynningar
Tilkynningar
12. október 2022
ZeroLogon
Nánar
Alvarlegur veikleiki er til staðar í Windows netþjónum (Windows Server) sem kallaður hefur verið ZeroLogon (CVE-2020-1472). Hefur hann fengið CVSS grunneinkunina (Base Score) 10.0 CRITICAL, en CVSS er notað til að leggja tölulegt mat á alvarleika veikleika. Nánar má t.d. lesa um veikleikann í skýrslu Secura.
14. september 2022
Varað við RDoS árásum
Nánar
DDoS (Distributed Denial-of-Service) er tegund af netárás þar sem einstaklingur eða hópur beinir mikilli netumferð inn á netlæga innviði fyrirtækis til að skerða afkastagetu. Umferðin er það mikil að netbúnaður hefur ekki undan að svara henni eða koma áfram þannig að notendur upplifa þjónusturof. RDoS, eða DDoS for Ransom, er tegund slíkra álagsárása þar sem gerð er DDoS árás sem fylgt er eftir með fjárkúgunarpósti. Oftast er hótað stærri árás ef ekki er greidd tiltekin upphæð.